Mótvindur // Fundur um ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi // Í dag kl. 17.00

Mótvindur / Fundur um ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi / Í dag kl. 17.00
Mótvindur / Fundur um ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi / Í dag kl. 17.00

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Vesturlands og Markaðsstofa Vestfjarða boða til mikilvægs fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi.

Fundurinn fer fram fimmtudaginn 22. október í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi, og stendur á milli kl. 17.00 - 19.00. Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.

Fundurinn fer fram á mikilvægum tímapunkti. Á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf í Norðvesturkjördæmi. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa.

Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun í Norðvesturkjördæmi og því er mikilvægt að þau séu rædd af fulltrúum kjördæmisins við þá sem starfa í greininni og þekkja stöðuna af eigin raun.

Á fundinum mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá verða flutt erindi frá SAF og fulltrúum sveitarstjórnarmála og ferðaþjónustu í kjördæminu.

Erindi flytja:

Blómleg ferðaþjónusta skilar stærri sneið til samfélagsins

Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar

Fyrirhugaðar skatta- og gjaldabreytingar í samhengi ferðaþjónustu

Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte

Að halda sjó - skemmtiferðaskip skapa verðmæti

Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða

Borgar sig enn að fjárfesta í ferðaþjónustu?

Ólafur Steinarsson, eigandi Krauma

Fundarstjóri: Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vesturlands

Seinni hluti fundarins verður vettvangur beinna samtala við þingmenn um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.

Þátttakendur í pallborðsumræðum:

Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingar
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins
Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins

Umræðustjóri: Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF

Fundurinn er hluti af fundarröðinni Mótvindur sem SAF standa að ásamt markaðsstofum víða um land. Nánari upplýsingar um fundarröðina má FINNA HÉR.

Fleiri fréttir