Mynd: Tuấn Kiệt Jr.
Í tilefni Sveitasælu sem fram fer um helgina hefur verið blásið til myndasamkeppni á Instagram.
Þrjár bestu myndirnar verða valdar með tilliti til fjölda ,,like a" á Instagram og verða verðlaun afhent á Sveitasælu í Skagafirði þann 19. ágúst nk.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum og koma frá fyrirtækjum í Skagafirði.
1. sæti: Gisting á Hlín Guesthouse
2. sæti: Gjafabréf fyrir tvo á Retro Mathús
3. sæti: Karfa með vörum frá Breiðargerði garðyrkjustöð, ostum frá Brúnastöðum og smyrslum frá Gandi Skörðugili.
/SMH