Opið hús hjá Oddfellow í dag

Oddfellow stúkurnar á Sauðárkróki verða með opið hús í dag frá klukkan 13 til 15, þar sem gestum gefst kostur á að skoða húsakynnin, kynnast starfi stúkanna og þiggja léttar veitingar að Víðigrund 5.

Um klukkan 14 fer fram sérstök styrkveiting til nærsamfélagsins. „Hlökkum til að taka á móti ykkur í vináttu, kærleika og sannleika,“ segir í tilkynningu Rbst nr. 13 Eir og St. nr. 22 Sif.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir