Sameining lögregluembætta veldur byggðarráði áhyggjum

Í frétt á Húnahorninu segir að byggðarráð Húnabyggðar hafi áhyggjur af áformum um sameiningu lögregluembætta og að sú miðstýring sem þar er boðuð geti haft neikvæð áhrif á öryggi íbúa. Sérstaklega er bent á hættu á fækkun starfa, lengri útkallstíma og minni áherslu á löggæslu í dreifbýli þegar fram líða stundir. Ráðið telur slíkt óásættanlegt.

Málið var til umfjöllunar á fundi byggðarráðs í vikunni og þar kom fram að ráðið taki undir bókun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem send haf verið dómsmálaráðuneytinu.

Fleiri fréttir