Stórskemmtileg sýning í Laugardalshöllinni
Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2026 var haldin í Laugardalshöll-inni í Reykjavík 9.-11. október 2026. Feykir komst ekki hjá því að uppgötva að Króksarinn Benedikt Rúnar Egilsson (sem flestir þekkja sem Benna í Bílabúðinni þó hann vinni þar ekki lengur) væri einn af þeim aðilum sem ætlaði að kynna vörur og þjónustu á sýningunni. Á leiðinni suður bárust honum því skilaboð þar sem hann var spurður hvort hann gæti tekið að sér að smella myndum af sýningunni fyrir Feyki og ekki síst ef hann rækist á kunnugleg andlit. Það reyndist sjálfsagt mál og þegar myndirnar bárust í tugatali þá varð ekki hjá því komist að spyrja hann aðeins út í bissnesinn og sýninguna.
