Tónleikar með hinni færeysku Guðrið

Gudrid Hansdottir tónlistarkona frá Færeyjum. MYND AF NETINU
Gudrid Hansdottir tónlistarkona frá Færeyjum. MYND AF NETINU

Færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir leggur upp í tónleikaferð um Ísland dagana 20.–29. október. Ferðin er tileinkuð nýjustu plötu hennar, Sýrublað, sem kom út í apríl og er sjöunda hljóðversplata hennar. Alls eru fyrirhugaðir níu tónleikar víðs vegar um landið og þar á meðal í Krúttinu á Blönduósi miðvikudaginn 21. október kl. 21.

Guðrið hefur verið virk í færeysku og norrænu tónlistar-lífi frá upphafi aldarinnar. Hún er þekkt fyrir hlýlegt þjóð-lagapopp og draumkennt indí-popp, bæði sem sólólistakona og úr rafpoppdúettinum BYRTA.

Nýja platan, Sýrublað, er pródúseruð af Høgna Lisberg. Guðrið lýsir tónlistinni sem ferskri, stökkri, grænni og örlítið súrri — líkt og að bíta í súrublað. Textarnir fjalla meðal annars um rótleysi nútímans, þrá eftir kyrrð náttúrunnar og kvíða gagnvart framtíðinni.

Á tónleikaferðinni verður hún ekki ein á sviðinu heldur nýtur liðsinnis annarra tón-listarmanna, meðal annars Høgna Lisberg. Hægt er að kynna sér Guðrið á Spotify og kaupa miða á Tix.is. /óab

Fleiri fréttir