Lóuþrælar á Blönduósi

Karlakórinn Lóuþrælar mun stíga á stokk og syngja í Blönduóskirkju nk. mánudag 24. apríl kl. 21:00. Söngstjóri er Daníel Geir Sigurðsson, undirleikur: Elinborg Sigurgeirsdóttir, píanó Ellinore Andersson, fiðla og einsöngvarar  Friðrik M. Sigurðsson, Guðmundur Þorbergsson og Skúli Einarsson.

Dagskráin  er fjölbreytt að vanda og er aðgangseyrir kr. 3.000,- (enginn posi) frítt fyrir 14 ára og yngri.

Lóuþrælar hvetja alla til að koma og eiga ánægjulega stund með þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir