LH lýsir yfir vonbrigðum með að þrefaldur heimsmeistari hafi ekki verið tilnefndur til íþróttamanns ársins

Þrefaldir heimsmeistarar, Jóhann R. Skúlason og Finnbogi frá Minni-Reykjum. Mynd: LHhestar.is.
Þrefaldir heimsmeistarar, Jóhann R. Skúlason og Finnbogi frá Minni-Reykjum. Mynd: LHhestar.is.

Stjórn Landssambands hestamannafélaga sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem lýst er yfir óánægju með tilnefningar Samtaka íþróttafréttamanna til íþróttamanns ársins. Finnst stjórninni jólakveðjur Samtaka íþróttafréttamanna til hestamanna heldur kaldar þar sem gengið er freklega fram hjá þreföldum heimsmeistara í hestaíþróttum, Skagfirðingnum Jóhanni Rúnari Skúlasyni, sem ætti að vera þess umkominn að komast á lista þeirra 10 íþróttamanna sem tilnefndir eru til íþróttamanns ársins, og tilkynnt var í morgun.

„Heldur eru jólakveðjur Samtaka íþróttafréttamanna til okkar hestamanna kaldar. Íþróttafréttamenn telja afreksknapann, þrefaldan heimsmeistara í hestaíþróttum Jóhann Rúnar Skúlason ekki þess umkominn að vera á lista þeirra 10 íþróttamanna sem hafa unnið stór afrek á árinu.  Landsliðið okkar kemst ekki á blað sem lið ársins þrátt fyrir besta árangur frá upphafi. Landsliðsþjálfarinn kemst heldur ekki á blað.

Oft höfum við hestamenn eygt von um að afrek okkar landsliðsknapa hafi verið rétt metin en svo hefur ekki verið um árabil. Nú bar svo við að afrek Jóhanns Rúnars Skúlasonar er þess eðlis að einstakt telst. Ekki vann hann einungis þrjá heimsmeistaratitla á HM í Berlín í sumar, hann fékk einnig sérstök verðlaun fyrir frábæra reiðmennsku á mótinu.

Það eru okkur mikil vonbrigði að íþróttafréttamenn opinberi með svo augljósum hætti vankunnáttu og eða áhugaleysi á hestaíþróttum sem raun ber vitni. Þessi niðurstaða kastar óverðskuldaða rýrð á hestamennsku sem íþróttagrein en gjaldfellir þó meira störf íþróttafréttaritara.

Landssamband hestamannafélaga hefur unnið ötullega að afreksmálum undanfarin ár svo eftir hefur verið tekið. Við teljum að það sé nauðsynlegt að Íþróttasamband Íslands endurskoði það fyrirkomulag sem viðhaft er við árlegt val á íþróttamanni ársins og því komið í faglegan farveg þar sem tryggt sé að íþróttagreinar sitji við sama borð en sé ekki háð áhuga og þekkingu íþróttafréttaritara.

Landssamband hestamannafélaga óskar landsmönnum gleðilegra jóla.
F.h. Landssambands hestamannafélaga
Lárus Ástmar Hannesson
formaður.“

Feykir tekur heilshugar undir með Landssambandi hestamannafélaga en HÉR er hægt að nálgast viðtal Feykis við Jóhann frá því í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir