Gul viðvörun í dag og appelsínugul í kvöld og nótt

Veðurspáin á Ströndum og Norðurlandi vestra um hádegi í dag. SKJÁSKOT AF VEÐUR.IS
Veðurspáin á Ströndum og Norðurlandi vestra um hádegi í dag. SKJÁSKOT AF VEÐUR.IS

Veðrið í haust hefur verið upp og ofan en það er þó fyrst nú í dag sem Veðurstofan gerir ráð fyrir vonskuveðri með appelsínugulum viðvörunum og látum. Gul viðvörun tekur gildi nú um klukkan níu á Ströndum og Norðurlandi vestra og um klukkan níu í kvöld má reikna með að það bæti í veðrið og þá hefur verið skellt á okkur appelsínugulri viðvörun. Reikna má með austanvindum framan af degi en norðanáttir taka síðan yfir þegar líður á daginn. Nú klukkan níu er skollið á vonskuveður í Blönduhlíðinni en við Miðsitju er nú vindur 26 m/sek og slær í 39. Éljagangur og hálka er á Öxnadalsheiði og vindur 17 m/sek.

Þeir sem eru kunnugir staðháttum geta eflaust ráðið í það hvaða máli skiptir hvort hann blæs að austan eða norðan. Þeir sem búa eða eru á ferð vestan fjalla geta reiknað með miklum vindi í austanáttinni og það má því ætla að vindur nái sér vel á strik austanvert í Skagafirði og í nágrenni við Blönduós og að sjálfsögðu víðar.

Vindi allt að 21 m/sek er spáð við Sauðárkróksflugvöll nú fyrir hádegið og 22 m/sek við Blönduós um og upp úr hádegi. Dregur heldur úr vindi þegar líður á daginn. Veðrinu fylgir mikil rigning sem gæti breyst í slyddu í byggð þegar líður á aðfaranótt fimmtudags og fram á morgun. Þegar ofar dreur má gera ráð fyrir snjókomu og vondu veðri og eru það skilaboð frá lögreglunni á Norðurlandi vestra að fólk sé ekki á ferðinni þegar veðrið verður sem verst. Veðrið ætti að öllu jöfnu að vera gengið niður um hádegi á morgun.

Samkvæmt upplýsingum Feykis hafa bændur komið skepnum á hús og vonandi hafa þeir sem búa á mölinni gengið vel frá trampólínum og öðru dóti sem getur tekið flugið þegar verulega hvessir.

Veðurspáin

14 okt. kl. 09:00 – 21:00 GUL VIÐVÖRUN

Norðaustan 15-25 m/s, hvassast í vindstrengjum við fjöll og snarpar vindhviður. Talsverð eða mikil rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið.

 

14 okt. kl. 21:00 – 15 okt. kl. 05:00 APPELSÍNUGUL VIÐVÖRUN

Norðan 18-25 m/s, hvassast norðantil. Talsverð eða mikil snjókoma eða slydda með lélegu skyggni og snjó á vegum. Ekkert ferðaveður. Snarpar vindhviður og lausamunir geta fokið.

Fleiri fréttir