Ráðhúsi Húnaþings vestra lokað

Frá Hvammstanga. MYND AF NETINU
Frá Hvammstanga. MYND AF NETINU

Feykir skýrði frá því í síðustu viku að flytja þyrfti starfsemi ráðhússins á Hvammastanga tímabundið í félagsheimilið þar sem loftgæði í húsingu reyndust óviðunandi. Nú liggja fyrir frekari niðurstöður rannsókna á innra byrði ráðhússins en tekin voru bæði stroksýni og efnissýni á nokkrum stöðum á öllum hæðum hússins. Niðurstöður þeirra leiddu í ljós að ástand hússins er mun verra en talið var.

Fram kemur í tilkynningu á vefsíðu Húnaþings vestra að meðal úrbóta sem lagðar eru til megi nefna skoðun á drenlögnum í kringum húsið, útskipti allra glugga, ítarleg yfirferð þaks og tengdra byggingarhluta, yfirferð allra lagna hússins með tilliti til endurnýjunar, þétting sprungna á útveggjun og skoðun á botnplötu. Í framhaldi af þessum athugunum verður unnt að kostnaðarmeta framkvæmdir sem ráðast þarf í til að gera húsið nothæft að nýju.

„Í ljósi framangreinds hefur verið tekin ákvörðun um að loka húsinu alfarið frá og með [10. október]. Ekki er forsvaranlegt að setja fólk, starfsmenn né gesti, í þær aðstæður sem í húsinu eru. Von er á sérfræðingum á miðvikudag sem munu hreinsa tölvubúnað starfsmanna og hann verður í framhaldinu fluttur í Félagsheimilið. Gert er ráð fyrir að sú aðstaða verði opnuð nk. fimmtudag,“ segir í tilkynningunni.

Rannsóknirnar voru unnar af Ferli verkfræðistofu.

Fleiri fréttir