Samkvæmt frétt í Irish Times í dag er Evrópusambandið nú að beita þrýstingi um að herða refsiaðgerðir gegn útflutningi á súráli til Rússlands, þar sem ál þaðan endar meðal annars hjá fyrirtækjum sem tengjast rússneskum hergagnaframleiðendum.
Tónlistarskóli Austur-Húnavetninga stendur nú frammi fyrir verulegum húsnæðis- og aðstöðuvanda sem hefur bein áhrif á gæði og skilvirkni tónlistarnáms í sveitarfélaginu. Til þess að tónlistarkennsla geti farið fram með eðlilegum hætti þarf tónlistarskóli að vera í návígi við grunnskólann. Nemendur þurfa að geta gengið auðveldlega úr kennslustundum í grunnskólanum yfir í tónlistartíma og aftur til baka án þess að það raski skólagöngu þeirra eða skapi óþarfa álag.
Byggðalistinn er ekki háður hefðbundinni flokkspólitík og getur því virkjað mannauðinn og skapað hugmyndir með frelsið að leiðarljósi. Á listanum er fólk af öllu hinu pólitíska litrófi, með ólíkan bakgrunn og víðsvegar að úr Skagafirði. Þannig búum við að víðtækri þekkingu á samfélaginu okkar, en eigum það sameiginlegt að brenna fyrir hagsmunum íbúa Skagafjarðar.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Sigvaldi hefur stundað spilerí með Hljómsveit kvöldsins ásamt nokkrum félögum sínum en hann er einnig duglegur að troða upp einn með gítarinn eða í félagi við aðra. Spurður um helstu tónlistarafrekin segir hann: „Að spila fyrir forsetann en í seinni tíð að spila á áramótaballi með Geirmundi Valtýssyni auðvitað!“ Þá ættu margir að kannast við Sigvalda eftir að hann komst í fjögurra söngvara úrslit í íslenskri útgáfu The Voice í lok ársins 2015...
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.