Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur kynnt hugmyndir um róttækar breytingar á raforkulögum. Samkvæmt þeim yrði ríkinu og fyrirtækjum þess veittar auknar heimildir til að hraða innviðaframkvæmdum og „ryðja hindrunum úr vegi“ sem taldar eru hamla framgangi orkuflutnings. Þessi grein er ekki skrifuð í þeim tilgangi að gera lítið úr mikilvægi þess að efla raforkuflutningskerfið.
Þegar rætt er um að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið er iðulega látið líta út sem hefja eigi samtal frá grunni. Mikilvægt er að muna að fyrri viðræður stóðu í heilt kjörtímabil og því verður ekki litið fram hjá þeim grunni sem þá var lagður.
Þegar sveitarfélög ráðast í stór og fjárfrek verkefni sem fyrirséð er að muni hafa áhrif á fjárhag til lengri tíma, teljum við afar mikilvægt að það sé gert í skýru og óumdeilanlegu umboði íbúa. Af þeirri ástæðu lögðu fulltrúar Byggðalistans fram tillögu um að efna til íbúakosningar um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor. Tillagan var tekin fyrir á fundi Sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 25. febrúar síðastliðinn, en felld með fimm atkvæðum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Sigvaldi hefur stundað spilerí með Hljómsveit kvöldsins ásamt nokkrum félögum sínum en hann er einnig duglegur að troða upp einn með gítarinn eða í félagi við aðra. Spurður um helstu tónlistarafrekin segir hann: „Að spila fyrir forsetann en í seinni tíð að spila á áramótaballi með Geirmundi Valtýssyni auðvitað!“ Þá ættu margir að kannast við Sigvalda eftir að hann komst í fjögurra söngvara úrslit í íslenskri útgáfu The Voice í lok ársins 2015...
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.