Krakkarnir brillera en reiknimeistarar klúðra
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Lokaútreikningar urðu á þann veg að Flóaskóli tók þriðja sætið og hefðu nemendur skólans með réttu átt að standa á palli og taka við verðlaunum. Við þetta féllu Varmahlíðarskóli og Grunnskóli Húnaþings vestra niður um sæti. Varmahlíðarskóli endaði með 40 stig en GHV hlaut 38 stig.
Nú er þetta að sjálfsögðu grátlegt að flýtirinn við að reikna saman úrslit sé svo mikill að enn og aftur verða mistök við útreikninga úrslitanna. Ekki er langt síðan að skóli fyrir austan hlaut þriðju verðlaun í undanriðli en þegar betur var að gáð átti Varmahlíðarskóli að vera í þriðja sætinu. Krakkarnir að austan því sviptir sínum verðlaunum á leiðinni út í rútu.
Kannski væri betra að flýta sér ekki alveg svona mikið, bjóða upp á eitt eða tvö góð skemmtiatriði fyrir spennta krakkana áður en úrslit eru kynnt og gera ekki svona leiðinleg mistök. Nú er Landsbankinn helsti styrktaraðili þessarar frábæru keppni. Kannski ekki heppilegt fyrir þann aðila að útreikningar á stigagjöf skólanna séu í tómu klúðri.
Herra Hundfúlum finnst þetta bara alls ekki nógu gott og það getur ekki verið flókið að hafa þetta í lagi. En takk fyrir skemmtilega keppni.