KK - Mugison - Jón Jónsson - Tónleikar
20. desember kl. 19:00-21:00
Hvað er að gerast
Blönduóskirkja
20
des
Kæru Blönduósingar og nærsveitungar, það er okkur sönn ánægja og heiður að koma með Aðventutónleikana okkar á Blönduós 
KK, Mugison og Jón Jónsson sameinast enn og aftur á aðventunni og bjóða upp á einstaka tónleika sem hafa á undanförnum árum orðið að föstum lið hjá fjölmörgum.
Á þessum tónleikum geta gestir átt von á blöndu af hlátri, hlýju, magnaðri tónlist og ógleymanlegri upplifun sem gera aðventuna enn betri.
Tónleikarnir hafa alla tíð verið uppseldir og notið mikilla vinsælda, enda fátítt að þessir listamenn stígi saman á svið. Það gæti því verið skynsamlegt að tryggja sér miða sem fyrst eftir að miðasalan hefst.
Venju samkvæmt verður með í för hinn hæfileikaríki Þorleifur Gaukur.
Miðaverð 9.500 í forsölu - 11.500 við innganginn.
Hópabókanir
arg@arg.is
Tónleikarnir verða án hlés og standa í 70 mínútur.
Ekki er selt í númeruð sæti heldur verður frjálst sætaval. Því mælum við eindregið með að mæta snemma til að ná góðum sætum 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.