100 þorskígildistonn á Blönduós

Blönduósbær sótti um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 og hefur ráðuneytið fjallað um umsóknina og er niðurstaðan sú að Blönduósbær fær 100 þorskígildistonn.

Ónotað aflamark byggðalagsins vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2009/2010 verður úthlutað eftir þeim reglum sem um byggðakvóta þessa fiskveiðiárs gilda og mun Fiskistofa úthluta því samtímis. Hér er um að ræða 38 þorskígildistonn sem færist á milli ára.

Fleiri fréttir