35 á atvinnuleysiskrá
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
31.10.2008
kl. 11.49
35 einstaklingar eru á atvinnuleysisskrá á Norðurlandi vestra í dag 31 október. 15 karlar og 20 konur. Hefur atvinnulausum fjölgað um einn síðan 21. október. Hlutfallslega eru flestir á skrá á Siglufirði, Hofsós og Skagaströnd.
Eitthvað er þó enn um góð störf í borði og er fólki í atvinnuleit bent á að skoða vef Vinnumálastofnunnar.
Fleiri fréttir
-
Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöllinni | Ólafur M. Jóhannesson segir frá
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 verður haldin í Laugardalshöllinni dagana 9.-11. október n.k. Markmið sýningarinnar er að kynna íslenskan landbúnað og leiða saman fyrirtæki og einstaklinga sem starfa í atvinnugreininni. Einnig að kynna fyrir gestum hreinleika íslenskra landbúnaðarafurða og þá miklu tækni sem nú er til staðar í íslenskum búskap.Meira -
Hellings golf í sumar | Frá Golfklúbbi Skagafjarðar
Golfsumarið er heldur betur komið á fullt. Fyrir utan innanfélagsmótin hjá okkur í boði HardWok og Esju Gæðafæðis þá eru opnu mótin farin að rúlla af stað líka og eru nú tvö opin mót búin og Meistaramót næst á dagskrá sem er hápunkturinn í mótahaldi hjá GSS. Meistaramóts vikan er 29. júní til 4. júlí og má þá búast við fjölmenni á vellinum og skemmtilegri keppni og alveg þess virði að gera sér ferð á Hlíðarendavöll og fylgjast með lífinu þar.Meira -
Áskaffi góðgæti bætir ferðum með leiðsögn við starfsemi sína | A. Herdís Sigurðardóttir skrifar
Áskaffi góðgæti er fyrirtæki í Skagafirði sem starfar í anda Slow food og Slow travel og leggur áherslu á gæði, ró og upplifun. Eigandi fyrirtækisins er A. Herdís Sigurðardóttir sem hefur síðustu misserin rekið Áskaffi góðgæti í félagsheimilinu Héðinsminni í fyrrum Akrahreppi en rak lengi kaffihúsið Áskaffi í Áshúsi í Glaumbæ. „Nú vil ég bjóða gestum Skagafjarðar meira en kaffi og kökur og er að hanna smáhópaferðir til að skapa upplifun sem snertir hjartað, vekur forvitni og skilur eftir góðar minningar“ segir Herdís.Meira -
Argentínskar landsliðskonur á Krókinn
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við argentínsku landsliðskonurnar Florenciu Chagas og Macarenu Durso fyrir komandi tímabil. Í tilkynningu á Facebook-síðu kkd. Tindastóls segir að Florencia sé ungur og öflugur bakvörður með mikla alþjóðlega reynslu, en Macarena er reynslumikill leikstjórnandi sem kemur síðast frá Spáni þar sem hún lék á háu stigi. Báðar eru þær með Evrópsk vegabréf.Meira -
Stoltastur af að hafa starfað með vinum sínum í Greifunum í fjóra áratugi / VIDDI Í GREIFUNUM
„Greifarnir eru á ferðalagi um landið með 40 ára afmælistúrinn, Síðasta sveitaballið. Við erum að heimsækja gömul samkomuhús og rifja upp sveitaballastemninguna sem margir sakna. Svo er nýja lagið okkar, Endalaust sumar, nýkomið út,“ segir Viddi í Greifunum sem jafnan hafa verið kenndir við Húsavík. Viddi heitir fullu nafni Kristján Viðar Haraldsson, fæddur 1965 og búsettur í Reykjavík.Meira
