8400 manns í sund á tæplega mánuði
Húnahornið segir frá því í dag að sundlaugin á Blönduósi hefur heldur betur slegið í gegn hjá heimamönnum og ferðamönnum sem leið eiga um þjóðveg 1 í gegnum Blönduós.
Rúmlega 8400 manns hafa sótt laugina frá opnun þann 16. júní s.l. og er Guðmundur Haraldsson forstöðumaður laugarinnar himinlifandi yfir aðsókninni. Hann segist hafa átt von á góðri aðsókn en þetta hafi farið langt fram yfir hans björtustu vonir.
Laugin verður formlega vígð næsta laugardag og má búast við að fyrir þann tíma hafi hátt í 9000 gestir heimsótt sundlaugina og því ekki seinna vænna að vígja gripinn.
