Aðalmenn og varamenn taka sæti á Alþingi

Sigurjón Þórðarson, varaþingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Mynd af althingi.is.
Sigurjón Þórðarson, varaþingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Mynd af althingi.is.

Í gær tók Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, sæti á Alþingi sem varaþingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir Eyjólf Ármannsson og mun sitja út næstu viku. Sigurjón hefur áður setið á þingi, en hann var þingmaður Frjálslynda Flokksins á árunum 2003-2007.

Þá tekur Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Framsóknarflokki, formaður framtíðarnefndar sæti sitt á ný og hverfur þá varþingmaður hennar Friðrik Már Sigurðsson af þingi.
Aðrir sem koma inn að nýju eru Þórunn Sveinbjarnardóttir og Inga Sæland í stað Guðmundar Andra Thorssonar og Wilhelms Wessman.  Þá tekur Píratinn Eva Sjöfn Helgadóttir sæti fyrir Gísla Rafn Ólafsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir