Aðalskipulag Skagastrandar samþykkt

Á fundi sveitarstjórnar Skagadtrandar í síðustu viku lá tillaga að aðalskipulagi Skagastrandar 2010-2022 til afgreiðslu sveitarstjórnar. Samkvæmt bókun skipulags- og byggingarnefndar 23. ágúst sl. er lagt til að aðalskipulag sveitarfélagsins 2010-2022 verði samþykkt af sveitarstjórn og því vísað til afgreiðslu Skipulagsstofnunar.

Fyrir fundinum lágu greinargerð skipulagsins og samantekt Landmótunar um athugasemdir og umsagnir vegna aðalskipulagsins þar sem fjallað er um allar umsagnir sem borist hafa. Þá lágu fyrir umsagnir sjö lögformlegra umsagnaraðila um aðalskipulagið og athugasemdir sem bárust á auglýsingatímanum frá Ásgeiri Axelssyni og Sigrúnu Guðmundsdóttur dags. 6. júlí 2010 annarsvegar og Rúnari Jósefssyni dags. 6. júlí 2010 hins vegar þar sem gagnrýnt er að Skagastrandarvegi verði breytt þannig að hann liggi þar sem nú eru ræktunar- og beitilönd.

Sveitarstjórn ræddi athugasemdirnar og taldi ekki forsendur til að gera breytingar á fyrirliggjandi aðalskipulagi en fól sveitarstjóra að veita svör þar sem komi fram að tillaga Vegagerðarinnar um breytingu á aðkomu til Skagastrandar taki m.a. mið af flokkun vega. Skagastrandarvegur sé skilgreindur sem stofnvegur sem nær inn í þéttbýlið. Skagavegur sé hins vegar skilgreindur sem tengivegur og þess vegna hafi verið gerð tillaga að breyttum gatnamótum þannig að Skagavegur tengist inn á Skagastrandarveg. Niðurstaða Vegagerðarinnar hafi verið að sú tillaga sem sett er fram í aðalskipulagstillögunni uppfyllti best vegtæknileg skilyrði m.a. vegna öryggissjónarmiða. Umrædd breyting á veginum sé hins vegar ekki inn á vegaáætlun og því munu leigutakar geta nýtt landið enn um sinn án truflunar af þeirri framkvæmd.

/Skagaströnd.is

Fleiri fréttir