Áherslubreytingar á skrifstofu og þjónustumiðstöð Blönduósbæjar

Blönduós. Mynd:Róbert Daníel Jónsson.
Blönduós. Mynd:Róbert Daníel Jónsson.

Frá áramótum hefur verið unnið að áherslubreytingum á skrifstofu og þjónustumiðstöð Blönduósbæjar. Breytingarnar ná yfir verkaskiptingu, starfsheiti og ábyrgð lykilstarfsmanna eftir þær starfamannabreytingar sem gerðar hafa verið. Tilkynnt er um breytingarnar á vef Blönduósbæjar en  þær hafa þegar tekið gildi.

  • Kristín Ingibjörg Lárusdóttir hefur tekið við starfi sem launafulltrúi sveitarfélagsins en hún sinnir jafnframt öðrum sérhæfðum og almennum skrifstofustörfum. 
  • Elfa Björk Sturludóttir sem áður var launfulltrúi hefur tekið við starfi sem gjaldkeri sveitarfélagsins. Hún sinnir jafnframt öðrum sérhæfðum og almennum skrifstofustörfum. 
  • Bergþór Gunnarsson sem hóf störf í janúar við þjónustumiðstöð verður verkefnastjóri veitna með áherslur á allar veitur sveitafélagsins. 
  • Páll Ingþór Kristinsson sem verið hefur eftirlitsmaður eigna verður verkefnastjóri þjónustumiðstöðvar og sinnir daglegri þjónustu hennar ásamt því að hafa áfram eftirlit með eignum sveitarfélagsins og viðhaldi þeirra. 
  • Þorgils Magnússon sem hefur verið byggingafulltrúi fær nú starfsheitið skipulags- og byggingafulltrúi. Hann sinnir einnig Húnavatnshreppi og Skagabyggð samkvæmt samningum þar um. 
  • Ágúst Þór Bragason sem verið hefur umsjónamaður tæknideildar verður forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs. 
  • Sigrún Hauksdóttir sem verið hefur aðalbókari Blönduósbæjar verður skrifstofu- og fjármálastjóri og jafnframt staðgengill sveitarstjóra.   

Aðrar áherslur varðandi ábyrgð og verkefni starfsmanna munu koma fram í endurskoðuðum starfslýsingum ofangreindra starfsmanna. Ekki verður breyting hjá þeim starfsmönnum sem ekki eru taldir upp hér.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir