Áhöld eru um hvort brotist hafi verið inn í samlagið í nótt

Skyrgámur, sá áttundi, sem einnig gengur undir nafninu Skyrjarmur, er stór og sterklegur og sólginn í skyr. Hann leitaði uppi skyrtunnur og át, þar til hann stóð á blístri. Íslenskir jólasveinar hafa skiljanlega alltaf verið afskaplega hrifnir af mjólkurafurðum eins og eldri nöfn á borð við Smjörhák og Rjómasleiki bera með sér.Tekið af mjolk.is.

Samkvæmt óstaðfestum fregnum var farið inn í mjólkursamlag KS í nótt og rótað í ostakerjum, fiktað í próteintanki og að endingu étið upp úr sósutunnum. Þegar lögreglan mætti á staðinn sat þar ófrýnilegur innbrotsþjófur og hámaði í sig majónes af áfergju.

Um var að ræða áttunda jólasveininn, Skyrjarm eða Skyrgám, sem fann ekkert skyr en sagði að majónesið væri ágætt líka þó óhollara væri. Það kemur ekkert á óvart því Skyrgámur er þekktur fyrir réttinn Zúrrí Búrrí, sem hann einmitt syngur um hér fyrir neðan ásamt Kjötkrók, af plötunni "Skyrgámur og Kjötkrókur kynna: Nýju jólasveinalögin".

 Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o’n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
uns stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

Á heimasíðu Jólamjólkur er hægt að finna góðar uppskriftir m.a. Skyr-límónu pannacotta. Sjá HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir