Andlega nærandi viðburðir á aðventu í Heimilisiðnaðarsafninu

Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson á Stofutónleikum. Aðsendar myndir.
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson á Stofutónleikum. Aðsendar myndir.

Sunnudaginn 15. desember voru haldnir Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Í þetta sinn voru það hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson sem báru hitann og þungann af tónleikunum en þeim til aðstoðar voru hjónin Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Ólafsson. Efnisskráin var fjölbreytt og seinni hluti hennar með jólalegu ívafi.

Stofutónleikar. Frá vinstri, Halldór, Sigga, Hugrún og Jonni.

Tónleikarnir voru sérstaklega vel sóttir og skapaðist náinn samhljómur milli flytjenda og gesta sem er einmitt einkenni góðra stofutónleika.

Í upphafs og lokaorðum Elínar safnstjóra kom fram m.a. að það væri með Stofutónelikana eins og Sumarsýningarnar að þeir væru ólíkir á milli ára. Einnig að oft á tíðum hafi þjóðþekkt fólk stigið á stokk í safninu en ekki væri síður ánægjulegt að fá heimafólk sem væri í raun ríkidæmi í héraði

Ástrós, Halldór og Sigga,  (Ástrós Elísdóttir var kölluð til liðs í lokalaginu).

Þess skal getið að Uppbyggingarsjóður styrkti Stofutónleikana en án þess stuðnings væri safninu vart gerlegt að standa fyrir þeirri nýbreytni og frumkvæði í menningarlífi héraðsins og jafnframt þjóna þeim markmiðum að vera lifandi og fjölþætt menningarstofnun.

Laugardaginn 7. desember fór fram viðburðurinn „Upplestur á aðventu“ í Heimilisiðnaðarsafninu. Þetta er árlegur viðburður þar sem eru kynntar eru og lesið upp úr nýútkomnum bókum.

Sr. Sigurður Ægisson kynnti og las upp úr bók sinn Gústi – alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn. Þetta er ævisaga Gústa sem gjarnan var kallaður „guðsmaður“.

Upplestur á aðventu, frá vinstri: Sigurður Pétursson, Kolbrún Zophoníasdóttir, Sigurjón Guðmundsson og Sr. Sigurður Ægisson.

Þá kynnti Sigurður Pétursson, fyrrum dýralæknir og las upp úr bók sinni Innbrotið sem er sjálfstætt framhald af bókinni Út í nóttina sem kom út í fyrra.

Sigurjón Guðmundsson, einn af lestrarvinum safnsins, las upp úr bókinni Kindasögur. Höfundar eru Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson. Í bókinni eru rifjaðar upp sögur af íslenskum kindum og ýmsum afrekum þeirra.

Þá las Kolbrún Zophoníasdóttir sem einnig er lestrarvinur safnsins upp úr bókinni Uppskriftir stríðsáranna eftir Önnu Dóru Antonsdóttur og meðhöfundur hennar er Kristrún Guðmundsdóttir. Um er að ræða mjög svo sérstaka uppskriftarbók sem byggir á handskrifuðum matreiðslubókum systranna Sigurlaugar, móður Önnu Dóru, og Guðbjargar Sveinsdætra frá Tjörn á Skaga en

Upplestur á aðventu - hluti hlustenda.

þær stunduðu báðar nám við Kvennaskólann á Blönduósi á stríðsárunum.

Góður rómur var gerður að kynningu og upplestri sem var í senn áhugaverður og skemmtilegur enda um afar ólíkar bækur að ræða.

Í lok beggja þessara viðburða var gestum boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur og áttu þeir notalega samverustund í kaffirými safnsins í vetrarhúminu hér á Blöndubökkum.

Elín S. Sigurðardóttir 

 

 

 

                     

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir