Ársskýrsla SSNV komin á netið
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
22.07.2009
kl. 10.18
Í skýrslunni er fjallað um starfsemi SSNV atvinnuþróunar, Vaxtarsamnings, menningarsamnings og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Þá er einnig umfjöllun um starfsemi SSNV málefna fatlaðra-Byggðasamlags.
Áhugasamir geta nálgast skýrsluna hér
Fleiri fréttir
-
Vestmannaeyingar koma á Krókinn
Um liðna helgi tryggði kvennalið Tindastóls í knattspyrnu sig inn í 16 liða úrslit Mjólkurbikars kvenna með 3-0 sigri á liði ÍR. Í dag var svo dregið í keppninni og góðu fréttirnar eru þær að Stólastúlkur fá heimaleik en verri fréttirnar eru að liðið mætir Bestu deildar liði ÍBV en liðin mættust í Lengjubikarnum fyrr í vetur og þá fór illa.Meira -
Framkvæmdir að hefjast á Skagavegi
Íbúar á vestanverðum Skaga kættust nú í morgun þegar verktakar mættu með vélar sínar en það styttist í að framkvæmdir hefjist við Skagaveg. Vegagerðin samdi við Mjölni Selfossi um að annast verkið en Páll Sighvatsson hjá Vegagerðinni segir að þeir hafi í dag verið að merkja vinnusvæðið og koma með tæki sín.Meira -
Vísindadagur á Skagaströnd
Fimmtudaginn 16. apríl s.l. var haldinn vísindadagur fyrir nemendur í 10. bekk Höfðaskóla á Skagaströnd þar sem áhersla var lögð á að kynna þeim fjölbreytt svið vísinda og tækni með fræðslu og verklegum æfingum.Meira -
Stefnt að tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki
Um langt árabil hafa Króksarar leitað að hentugum stað fyrir tjaldsvæði bæjarins en lengi hefur legið fyrir að tjaldsvæðið á Flæðunum, milli sundlaugar og Safnahússins, yrði að víkja. Unnið var skipulag að tjaldsvæði í Sauðárgili en eftir mótmæli íbúa í nálægð við svæðið var ákveðið að hætta við það. Nú síðustu misserin hefur valið staðið á milli tjaldsvæðis á Nöfum og við Borgargerði og á síðasta fundi sveitarstjórnar var samþykkt að auglýsa skipulagslýsingu fyrir Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki.Meira -
Emma Katrín og Lena Rut Íslandsmeistarar í tvíliðaleik
Meistaramót Íslands í badminton fór fram um helgina í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Badmintondeild Tindastóls sendi tvo keppendur til leiks; systurnar Júlíu Marín og Emmu Katrínu Helgadætur. Bestum árangri náði Emma í tvíliðaleik kvenna en hún og Lena Rut úr BH vörðu Íslandsmeistaratitilinn.Meira
