Auglýst eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa á vef sínum eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2019. Hér er um er ræða nýjung í starfinu en ætlunin er að viðurkenningin verði framvegis veitt á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra.
Viðurkenningarnar verða veittar í tveimur flokkum:
- Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.
- Verkefni á sviði menningar.
Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í þessum flokkum.
Tekið er við tilnefningum til miðnættis sunnudaginn 2. febrúar nk. í gegnum rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti.
Reglur um viðurkenningarnar er að finna hér.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.