Beint flug milli Akureyrar og Rotterdam

Nú hefur hollenska flugfélagið Transavia hafið beina sölu á flugsætum til Akureyrar frá Rotterdam í Hollandi. Ferðirnar sem um ræðir verða farnar í sumar og næsta vetur. Í fréttatilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands kemur fram að þetta er í fyrsta sinn sem hollenskt flugfélag selur sjálft sæti í ferðir til Akureyrar og er flugið tilkomið vegna ferða á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel sem býður upp á skipulögð ferðalög um Ísland frá Akureyri. Transavia selur hins vegar aðeins sætin, óháð Voigt Travel, þannig að segja má að í fyrsta sinn sé áætlunarflug í boði til og frá Akureyri til Hollands.

Í tilkynningu Markaðsstofunnar segir að ljóst sé með þessu skapist gríðarleg tækifæri fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi, en einnig fyrir aðrar atvinnugreinar. Norðlendingar hafi nú enn fleiri tækifæri til að kaupa stök flugsæti til Rotterdam en Ferðaskrifstofa Akureyrar selur einnig stök sæti, sem og pakkaferðir, til Rotterdam. Frá Rotterdam má svo hægt um vik að fljúga áfram til annnarra áfangastaða sem skipta tugum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir