Bilun í símkerfi 112
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
09.02.2024
kl. 13.39
siggag@nyprent.is
Bilun er í símkerfi Neyðarlínunnar, eins og staðan er núna, ásamt netspjallinu þeirra. Verið er að vinna í að finna út hvað veldur þessari bilun og er fólki bent á að hringja aðeins í ítrustu neyð í eftirfarandi símanúmer, 864-0112, 849-5320 eða 831-1644.
Fleiri fréttir
-
Stór sigur á Stjörnunni í Garðabænum
Eftir tvo tapleiki í byrjun móts var pínu presssa á liði Tindastóls að krækja í stig í Garðabænum í kvöld þegar Stólastúlkur sóttu lið Stjörnunnar heim. Eins og reikna mátti með sat lið Tindastóls aftarlega á vellinum en beitti snörpum skyndisóknum þegar boltinn vannst. Þrátt fyrir að heimastúlkur hafi verið talsvert meira með boltann í kvöld þá unnu gestirnir sanngjarnan sigur, gerðu eitt mark í hvorum hálfleik og hefðu hæglega getað unnið stærra. Lokatölur 0-2.Meira -
Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní
„Við erum bjartsýn en nú er þetta í höndum íbúa,“ er haft eftir oddvitum Húnabyggðar og Skagabyggðar á Facebook-síðu Húnabyggðar í kvöld en sveitarfélögin hafa samþykkt samhljóða að setja sameiningu sveitarfélaganna í íbúakosningu í júní.Meira -
Að pissa eða ekki pissa | Leiðari 16. tölublaðs Feykis
...Í bíó á þessum tímum voru mögulega myndir á borð við Cannonball Run, Grease og Superman. Ekki var óvanalegt að Mundi hitaði upp með einum RoadRunner áður en stjörnunar birtust á tjaldinu. Klassískar Sæluvikumyndir voru Áfram-myndirnar (Carry On) og Trinity-myndirnar með hinum óborganlegu Terence Hill og Bud Spencer. Risinn Bud rotaði menn miskunnarlaust með einu góðu höggi ofan á höfuðið – brosti aldrei og var frekar þreyttur á þessum aumingjum sem voru með vesen. Þessar myndir hafa pottþétt ekki elst eins vel og Chaplin myndirnar sem Mundi sýndi í Sæluviku – enda kvikmyndaklassík einstaks listamanns...Meira -
Styttist vonandi í frumsýningu
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir 03.05.2024 kl. 14.15 gunnhildur@feykir.isÞað hefur sennilega ekki farið framhjá mörgum að Leikfélag Sauðárkróks þurfti að fresta frumsýningu vegna veikina í leikhópnum. Fjölmargir voru þegar búnir að kaupa sér miða á sýninguna og ljóst að Litla hryllingsbúðin verður sýnd það er bara ekki alveg komið á hreint hvenær.Meira -
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakjörs 1. júní 2024
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir 03.05.2024 kl. 13.45 gunnhildur@feykir.isÍ tilkynningu frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra eru hér upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024 er hafin.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.