Bílvelta á Þverárfjallsvegi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
01.12.2008
kl. 08.35
Bíll valt á Þverárfjallsvegi á fimmta tímanum í gær. Fjórir voru í bifreiðinni og sluppu að sögn lögreglunnar á Blönduósi án meiðsla.
Hálka og snjór eru á Þverárfjallsvegi sem varð til þess að bílinn valt en endaði í mjúkum snjó og því urðu ekki verulegar skemmdir á bílnum.
Fleiri fréttir
-
Dr. Ingibjörg tekur tímabundið við formennsku stjórnar Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
Dr. Ingibjörg Sigurðardóttir, deildarstjóri Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, hefur tekið tímabundið við formennsku, í leyfi Dr. Þórhalls Guðlaugssonar, í stjórn Rannsóknamiðstöðvar ferðamála (RMF). Í frétt á vef Háskólans á Hólum kemur fram að þetta undirstriki mikilvægt hlutverk hennar innan ferðamálafræða og styrki jafnframt stöðu Háskólans á Hólum í rannsóknum og þróun á sviði ferðaþjónustu.Meira -
Vestmannaeyingar koma á Krókinn
Um liðna helgi tryggði kvennalið Tindastóls í knattspyrnu sig inn í 16 liða úrslit Mjólkurbikars kvenna með 3-0 sigri á liði ÍR. Í dag var svo dregið í keppninni og góðu fréttirnar eru þær að Stólastúlkur fá heimaleik en verri fréttirnar eru að liðið mætir Bestu deildar liði ÍBV en liðin mættust í Lengjubikarnum fyrr í vetur og þá fór illa.Meira -
Framkvæmdir að hefjast á Skagavegi
Íbúar á vestanverðum Skaga kættust nú í morgun þegar verktakar mættu með vélar sínar en það styttist í að framkvæmdir hefjist við Skagaveg. Vegagerðin samdi við Mjölni Selfossi um að annast verkið en Páll Sighvatsson hjá Vegagerðinni segir að þeir hafi í dag verið að merkja vinnusvæðið og koma með tæki sín.Meira -
Vísindadagur á Skagaströnd
Fimmtudaginn 16. apríl s.l. var haldinn vísindadagur fyrir nemendur í 10. bekk Höfðaskóla á Skagaströnd þar sem áhersla var lögð á að kynna þeim fjölbreytt svið vísinda og tækni með fræðslu og verklegum æfingum.Meira -
Stefnt að tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki
Um langt árabil hafa Króksarar leitað að hentugum stað fyrir tjaldsvæði bæjarins en lengi hefur legið fyrir að tjaldsvæðið á Flæðunum, milli sundlaugar og Safnahússins, yrði að víkja. Unnið var skipulag að tjaldsvæði í Sauðárgili en eftir mótmæli íbúa í nálægð við svæðið var ákveðið að hætta við það. Nú síðustu misserin hefur valið staðið á milli tjaldsvæðis á Nöfum og við Borgargerði og á síðasta fundi sveitarstjórnar var samþykkt að auglýsa skipulagslýsingu fyrir Tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki.Meira
