Bílvelta á Vatnsskarði
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
08.10.2012
kl. 09.15
Bíll valt vegna hálku á Vatnsskarði í gærkvöldi. Samkvæmt Mbl.is voru fjögur ungmenni í bílnum og voru þau öll flutt á sjúkrahúsið á Sauðarkróki til skoðunar.
Mikil hálka er á svæðinu og sagði lögreglan á Blönduósi í samtali við Mbl.is að vegurinn hafi verið blautur og mikið um hálkubletti þegar slysið var og þegar leið á kvöldið fór að snjóa á svæðinu og allt varð hvítt.
