Blönduósbær auglýsir eftir viðburðastjórnanda

Blönduós. Mynd af vef Blönduósbæjar. Ljósmyndari Róbert Daníel Jónsson.
Blönduós. Mynd af vef Blönduósbæjar. Ljósmyndari Róbert Daníel Jónsson.

Blönduósbær auglýsir á vef sínum eftir viðburðastjóra sem m.a. er ætlað að hafa það hlutverk með höndum að stjórna og sjá um Húnavöku og útgáfu kynningarefnis fyrir hátíðina. Í auglýsingu á vef sveitarfélagsins segir að leitað sé eftir áhugasömum aðila, með þekkingu og reynslu af viðburðarstjórnun, til að stjórna viðburðum í sveitarfélaginu, m.a. bæjarhátíðinni Húnavöku, sem haldin verður dagana 18.-21. júlí nk. Húnavaka er opin öllum og samanstendur m.a. af fjölskylduskemmtun, dansleikjum, söngvakeppni og kvöldvöku. Um er að ræða tímabundna ráðningu með möguleika á framlengingu til lengri tíma. Umsóknarfrestur er til 5.mars 2019.

Viðkomandi þarf að hafa menntun sem nýtist í starfi, reynslu af viðburðarstjórnun, samskipta- og samvinnuhæfni, jákvætt viðhorf, sveigjanleika og þjónustulund og gott vald á íslensku, talaðri og ritaðri. Óskað er eftir að umsókn fylgi ferilskrá yfir menntun og fyrri störf, kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar og hugmyndir um hvernig umsækjandi sér fyrir sér hátíðina til framtíðar. 

Nánari upplýsingar veitir Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri, í síma 455 4700 eða á netfangið valdimar@blonduos.is 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir