Bókin Íslenskir vettlingar til sölu hjá Heimilisiðnaðarsafninu

Út er komin bókin Íslenskir vettlingar sem inniheldur 25 nýjar útfærslur á gömlum vettlingamynstrum. Höfundur bókarinnar er Guðrún Hannele Henttinen og útgefandi er Vaka-Helgafell. Allar uppskriftirnar í bókinni byggja á vettlingum sem varðveittir eru í Heimilisiðnaðarsafninu. Er þessi útgáfa enn eitt dæmið um hvernig munir í Heimilisiðnaðarsafninu verða að yrkisefni höfunda, hönnuða og listamanna við nýja listsköpun.

Í frétt frá Heimilisiðnaðarsafninu á vef Húnahornsins segir að bókina prýði myndir af upprunalegu vettlingunum sem sjá má í safninu en með hverri mynd er uppskrift af nýju vettlingunum. Í mörgum tilfellum eru vettlingarnir skrautlegir en hæfa þó mjög vel gömlu vettlingunum bæði með tilliti til prjónatækni og mynsturgerðar. 

Bókin sem er bæði vegleg og falleg er gefin út á íslensku og ensku og er nú þegar fáanleg í Heimilisiðnaðarsafninu. Þeir sem óska eftir að kaupa bókina hafi vinsamlegast samband við Elínu í síma 8626147 eða í tölvupósti textile@textile.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir