Breytingar á samþykktum Húnavatnshrepps.

Ýmsar breytingar voru gerðar á nefndarskipan á síðasta fundi hreppsnefndar Húnavatnshrepps, sem munu taka gildi á nýju kjörtímabili. Atvinnumálanefnd og Samgöngu- og fjarskiptanefnd lagðar niður. 

Stofnuð verður þess í stað Atvinnumála- og samgöngunefnd, sem í eru þrír aðalmenn og þrír til vara.  Undir nefndina heyra atvinnumál og samgöngumál sveitarfélagsins. Á sama fundi var lögð fram tillaga frá E-lista um að fækkað yrði í hreppsnefnd úr sjö fulltrúum í fimm.  A-listi lagði til að fjöldi fulltrúa í hreppsnefnd yrði óbreyttur og var það samþykkt.

Fleiri fréttir