Brunar á heimilum flestir í desember

Tölfræði tjóna hjá VÍS sýnir að  flestir brunar á heimilum eiga sér stað í desember og þar fast á eftir fylgir janúar. Algengustu brunar á þessum tíma eru vegna kerta og eldavéla og eru nú þegar farnar að koma inn tilkynningar um bruna vegna kertaskreytinga. Á heimasíðu VÍS segir að mikilvægt sé að fylgjast vel með kertum sem hafa verið tendruð og muna að slökkva á þeim.

En þau krosstré geta brugðist og því má aldrei hafa umgjörð kerta með þeim hætti að hætta sé á að kvikni í út frá þeim ef gleymist að slökkva eða ef herbergi er yfirgefið í skamma stund.

Algengt er að sjá skreytingar í verslunum og á samfélagsmiðlum sem þessa er ekki gætt. Oft eru ótryggar undirstöður, kerti sem standa of þétt saman en 10 sm verða að vera á milli þeirra og skraut, greni eða annað sem liggur alveg upp við kertin. Allt þetta býður hættunni heim sem er aldrei áhættunnar virði þó að skreytingin sé falleg, segir á vis.is. 

Þar kemur einnig fram að óvenju margir stórir brunar hafa orðið hjá VÍS þetta árið og ekki aðeins hjá fyrirtækjum heldur líka heimilum. Þriðjungs fjölgun varð á brunum á heimilum á milli áranna 2015 og 2016.

„Sem betur fer hefur sú þróun ekki haldið áfram heldur hefur brunum á heimilum fækkað frá 2016 og það sem liðið er núna af árinu eru teikn á lofti um að sú þróun haldi áfram.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir