Búið að birta drög að starfsleyfisskilyrðum vegna skotvallar á Blönduósi
Drög að starfsleyfi fyrir Skotfélagið Markviss vegna starfrækslu skotvallar á Blönduósi eru nú til kynningar hjá Blönduósbæ. Þeir sem telja sig málið varða eru hvattir til að kynna sér þær og gera athugasemdir ef þurfa þykir.
Á heimasíðu Blönduósbæjar er hægt að nálgast drögin, bæði starfsleyfisskilyrðin og afstöðumynd af skotvellinum. Þeir sem hafa athugasemdir fram að færa þurfa að senda þær til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra í síðasta lagi þann 10. desember nk.
HÉR má nálgast umrædd drög að starfsleyfisskilyrðum vegna skotvallar á Blönduósi.