Byggðakvótareglur samþykktar á Blönduósi
Bæjarráð Blönduóssbæjar hefur fundað með hagsmunaaðilum þar sem málefni byggðakvóta sveitarfélagsins voru rædd en bæjarráðið samþykkti að úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011 skuli vera með þeim hætti að reglugerð nr. 999/2010 gildir um úthlutun byggðakvóta fyrir Blönduós með eftirfarandi breytingum:
„Skipta skal úthlutuðum byggðakvóta með þeim hætti að 60% skiptist jafnt á milli þeirra umsækjenda sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar og 40% af úthlutuðum byggðakvóta skal skipt milli sömu umsækjenda samkvæmt ákvæði 4. gr. þó er gerð sú breyting á 6 línu 1. mgr. 4. gr. að „innan viðkomandi byggðarlags“ fellur út. Miðað skal við landaðan afla.
