Byggðastofnun kortleggur húsnæði fyrir störf án staðsetningar

Mynd: byggdastofnun.is
Mynd: byggdastofnun.is

Byggðastofnun hefur tekið saman upplýsingar um mögulegt húsnæði fyrir störf án staðsetningar. Var upplýsingum safnað saman með aðstoð landshlutasamtaka sveitarfélaga og eru þær upplýsingar settar fram á korti sem finna má hér. Sagt er frá þessu í frétt á vef Byggðastofnunar

Á kortinu er að finna 83 staði sem geta tekið á móti fólki sem vinnur starf án staðsetningar. Á þessum stöðum eru yfir 100 starfsstöðvar fyrir einstaklinga. Landsbyggðirnar eru því nú þegar vel í stakk búnar til að taka á móti störfum á vegum ríkisins og stofnana þeirra. 

Kortinu er ætlað að vera lifandi upplýsingabanki fyrir þá aðila sem hugsa sér að sinna opinberu starfi án staðsetningar og forstöðumenn ráðuneyta og stofnana. Inni á kortinu birtast ákveðnar grunnupplýsingar um viðkomandi staði ásamt tengilið sem hafa skal samband við ef áhugi er fyrir hendi. Kortið er unnið að beiðni samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og er ætlunin að uppfæra upplýsingarnar sem þar birtast eins og þörf krefur.

17 staðir á Norðurlandi vestra eru tilgreindir á kortinu. Í Akrahreppi, Hvammstanga, Húnavöllum, tveir staðir á Skagaströnd, fimm á Blönduósi og sjö á Sauðárkróki.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir