Djásn og dúllerí – Skiptibókamarkaður
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
27.06.2013
kl. 08.59
Nú er hægt að koma með gamla bók að heiman og velja sér ,,nýja” í staðinn hjá Djásn og dúllerí.
Einnig eru notaðar bækur og tímarit til sölu á vægu verði. Djásn og dúllerí er staðsett á Skagaströnd, opnunartíminn í sumar verður frá 14:00 til 18:00. Skagaströnd.is
Fleiri fréttir
-
„Stemningin hefur verið frábær allt tímabilið“
Bónus deild kvenna hefur nú verið skipt upp í efri og neðri hluta og hófst keppni í vikunni. Lið Tindastóls sat hjá í fyrstu umferð en Stólastúlkur heimsækja Garðabæinn á laugardaginn þar sem leikur gegn Stjörnunni bíður þeirra. Feykir heyrði hljóðið í Israel Martín í morgun og spurði hann meðal annars út í leynivopn.Meira -
Skagfirðingar ekki spenntir fyrir styttingu
Samgöngufélagið gefst ekki upp á styttingu þjóðvegar 1 um Norðurland vestra en byggðarráði Skagafjarðar barst tölvupóstur frá félaginu 12. janúar síðastliðinn þar sem farið var þess á leit við sveitarfélagið að gerð yrði grein fyrir afstöðu sveitarfélagsins til lagningu Vindheimaleiðar. Það var afstaða byggðarráðs að ekki séu fyrir hendi fullnægjandi forsendur, hvorki umferðaröryggislegar, fjárhagslegar, skipulagslegar né umhverfislegar, til að gera ráð fyrir Vindheimaleið og Húnavallaleið í skipulagi eða samgönguáætlun á þessu stigi.Meira -
Skot í gær og annað væntanlegt í kvöld
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 26.02.2026 kl. 09.05 oli@feykir.isStinningskaldi er nú sitt hvoru megin við Skaga en hiti er um og yfir frostmarki. Allir vegir sem vanalega eru opnir yfir veturinn eru færir en víðast hvar er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Það hægir á vindi um hádegi en í kvöld og næstu nótt ganga skil yfir landið og þá bæði hvessir og snjóar á Norðurlandi vestra.Meira -
Skagstrendingar gera klárt fyrir framkvæmdir sumarsins
Á Skagaströnd hefur verið unnið markvisst að umbótum á innviðum og þjónustu undanfarin misseri, samhliða því að undirbúningur fyrir sumarið er kominn vel á veg. Fjölbreyttar framkvæmdir eru í gangi á sviði mannvirkja, skólamála, gatnakerfis og hafnaraðstöðu.Meira -
Glaumbær hlýtur sérstaka viðurkenningu
Hvatningarverðlaun CIE Tours til framúrskarandi fyrirtækja í ferðaþjónustu voru veitt við hátíðlega athöfn á veitingastaðnum MAR Seafood í Reykjavík í gær, 24. febrúar. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt hér á landi en þau eru einnig veitt árlega í Bretlandi og á Írlandi. Meðal þeirra sem hlutu sérstaka viðurkenningu var Glaumbær Museum.Meira
