Dregið hefur úr bikblæðingum

Mynd:Vegagerdin.is
Mynd:Vegagerdin.is

Bikblæðingar eru nú mun minni á leiðinni milli Borgarness og Akureyrar en verið hefur síðustu daga. Ástandið fór að batna síðdegis í gær og er mun betra nú fyrir hádegi að því er fram kemur í frétt á vef Vegagerðarinnar.  Vegagerðin hefur þó áhyggjur af því að ástandið gæti átt eftir að versna með hækkandi hitastigi þegar á daginn líður og fylgist grannt með ástandinu.

Vegfarendur eru áfram hvattir til að vera ekki á ferðinni að óþörfu og að fylgjast með fréttum frá Vegagerðinni, tilkynningum sem koma á heimasíðunni eða á Twitter-síðu Vegagerðarinnar. Einnig má nálgast nýjustu upplýsingar með því að hringa í síma 1777.

Vegurinn var hreinsaður í gær og hefur verið yfirfarinn aftur í morgun. Von er á því að hitastig fari lækkandi í kvöld og á morgun sem mun hjálpa til við að stöðva þessar blæðingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir