Eimskip gerist einn af aðal styrktaraðilum Landsbjargar

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, og Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, handsala styrktarsamninginn. Aðsendar myndir.
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, og Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, handsala styrktarsamninginn. Aðsendar myndir.

Eimskip og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa gert með sér samstarfssamning þar sem fyrirtækið gerist einn af aðal styrktaraðilum Landsbjargar, með sérstaka áherslu á að styðja við björgunarstarf og forvarnir á sjó og landi. Í sameiningu munu félögin vekja sérstaka athygli á slysavarnaverkefninu Örugg á ferðinni, sem snertir á öllum flötum samgangna, og sérstaklega hvetja til aukinnar hjálmanotkunar.

Í tilkynningu til fjölmiðla segir að saga félaganna tveggja sé samofin í nærri eitt hundrað ár, en grunnur að stofnun Slysavarnafélagsins var lagður á fundi í húsi HF Eimskipafélags Íslands í Pósthússtræti 2. 
„Það er afar ánægjulegt að skrifa undir samstarfssamning við Landsbjörgu en félagið hefur unnið ómetanlegt starf í þágu þjóðarinnar í gegnum tíðina. Við leggjum mikla áherslu á öryggis- og forvarnarmál í okkar starfsemi. Í fjölbreyttum rekstri eins og okkar þar sem við starfrækjum skip og bíla víðsvegar um landið höfum við þurft að treysta á björgunarsveitirnar og vitum því vel af eigin raun hversu mikilvægt starf er unnið hjá þeim. Samofin saga félaganna nær aftur til ársins 1920 og við hlökkum til að hefja nú nýjan kafla í samstarfi félaganna,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips.

Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir félagið fagna því að fá Eimskip inn í öflugan hóp aðalstyrktaraðila þess. „Stuðningur þeirra við félagið er ómetanlegur í því viðamikla starfi sem Slysavarnafélagið Landsbjörg sinnir. Eimskip hefur látið sig slysavarnamál varða í tugi ára með góðum árangri. Ber þar helst að nefna samstarf þeirra við Kiwanis, þar sem skólabörn hafa fengi hjólreiðahjálma að gjöf.

Björgunarskipið Sigurvin híft í land í Sundahöfn í dag. 

Sameiginleg sýn félagana á mikilvægi forvarna gerir okkur kleift að halda úti enn kraftmeira starfi en ella og í sameiningu orðið enn öflugri í öryggis- og forvarnarmálum, bæði á sjó og á landi.“

Nýjasta björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sigurvin, sem staðsett verður á Siglufirði, kom til landsins í dag um borð í skipi Eimskips, og bíður nú haffæris, og mun sigla til Siglufjarðar þar sem tekið verður á móti því með hátíðahöldum þann 25. mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir