Ekki sátt með útboð skólaaksturs
Mikil óánægja er hjá mörgum íbúum Húnavatnshrepps með afgreiðslu útboðs og tilboða vegna skólaaksturs við Húnavallaskóla skólaárin frá 2011-2012 til 2013-2014.
Á hreppsnefndarfund Húnavatnshrepps í vikunni var lagt fram erindi frá óánægðum foreldrum í Svartárdal, Langadal, Blöndudal og Svínadal þar sem mótmælt er þessum ákvörðunum og hafna þau alfarið þeim vinnubrögðum að gengið hafi verið framhjá lægstu tilboðunum í skólaakstri Húnavallaskóla og krefjast þess að það verði endurskoðað.
