Jólaleg Höskuldsstaðakirkja
Þessa fallegu mynd af Höskuldsstaðakirkju í Skagastrandarprestakalli, sem er í Húnavatnsprófastsdæmi, tók Höskuldur B. Erlingsson á dögunum. Á Höskuldsstöðum var prestssetur til 1964, þegar það var flutt til Skagastrandar og kaþólskar kirkjur voru helgaðar Maríu guðsmóður og Pétri postula.
Kirkjan, sem nú stendur á Höskuldsstöðum, var vígð 31. mars 1963. Hún er úr steinsteypu og tekur 100 manns í sæti. Litað gler er í gluggum. Yfir sönglofti er herbergi. Trékross er efst á turninum. Skrúðhúsið er sunnan kórs. Kaleikur og patína eru frá 1804 og altaristaflan er eftir Þórarin B. Þorláksson. Klukkurnar tvær eru frá árunum 1733 og 1737.
