Engir í einangrun eða sóttkví á Norðurlandi vestra
Aðeins greindust þrjú ný kórónuveirusmit innanlands í gær og voru tveir þeirra sem greindust í sóttkví við greiningu. Samkvæmt upplýsingum á vefnum Covid.is liggja nú 25 á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins og er einn þeirra á gjörgæslu. 239 einstaklingar eru í sóttkví og 143 eru í einangrun. Í dag eru nákvæmlega tíu mánuðir frá því veiran greindist fyrst á Íslandi.
Í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra í dag kemur fram að nú er autt borð á Norðurlandi vestra, enginn í sóttkví og enginn í einangrun.