Enn er skorið niður á Blönduósi
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi fékk líkt og sama stofnun á Sauðárkróki bréf sl. föstudag þar sem stofnuninni var tilkynnt að hálfum mánuði áður, eða um áramót, hafi greiðsla ríkisins fyrir pláss á dvalarheimili aldraðra verið minnkuð sem nemur þremur plássum.
Ríkið greiddi niður 9 pláss á árinu 2010 en á árinu 2011 mun þessi niðurgreiðsla fara niður í 6 pláss. Er þarna um viðbótarniðurskurð að ræða og ljóst að forsvarsmönnum stofnunarinnar mun verða vandi á höndum að mæta þessum niðurskurði.
