Eyðum ekki jólunum á klósettinu
Þessa dagana er mikið um að vera í eldhúsum landsins enda jólaundirbúningur í fullum gangi og margar tegundir af matvælum sem koma þar við sögu. Matvælastofnun vill benda fólki á að mikilvægt er að hugað sé vel að hreinlæti, réttri meðhöndlun og kælingu matvæla í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að heimilisfólk og gestir þess fái matarborna sjúkdóma sem valdið geta miklum óþægindum.
„Sjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli á eldhúsborðinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu,“ segir í pistli sem Matvælastofnun sendi frá sér í gær. Þar er einnig minnt á að nóróveirur geta dreift sér hratt á jólunum og því er mikilvægt að einstaklingar með einkenni matarborinna sjúkdóma haldi sig frá matargerð. Bent er á að reglulegur handþvottur minnkar líkur á smiti milli aðila eða frá menguðum matvælum.
Ennfremur segir:
„Höfum í huga að:
- Hrátt kjöt og safi úr því skal ekki komast í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu.
- Þvoum ávexti og grænmeti til að varna því að bakteríur af því berist í matvæli sem eru tilbúin til neyslu.
- Þvoum hendur áður en hafist er handa við matreiðslu og eftir snertingu við hrátt kjöt og óþvegið grænmeti
- Þrífum skurðarbretti og áhöld strax eftir notkun eða notum sérstök skurðarbretti fyrir kjöt, grænmeti og tilbúin matvæli
- Skipuleggjum ískápinn vel og höldum honum hreinum til að varna því að krossmengun verði þar
- Skiptum reglulega um borðtuskur, viskastykki og handþurrkur.
Bakteríur fjölga sér mjög hratt við kjöraðstæður. Við 37°C getur ein baktería fjölgað sér í 1000 á 3 tímum og í 1 milljón á 6 tímum. Það er því mikilvægt að geyma og meðhöndla matvæli við það hitastig að komið verði í veg fyrir hraða fjölgun baktería með því að takmarka þann tíma sem viðkvæm matvæli, s.s. reyktur og grafinn fiskur og álegg er á borðum við stofuhita. Mest hætta er á fjölgun baktería þegar hitastig matvælanna er milli 5 og 60°C. Nægileg hitameðhöndlun drepur bakteríur og geymsla við kælihitastig (0-4°C) takmarkar fjölgun þeirra. Ef halda á matvælum heitum skal þeim haldið við 60°C og við kælingu hitaðra matvæla skal gæta þess að þau nái 4°C á 3 tímum.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.