Eyþór, Birna og Grímur sigurvegarar á Meistaramóti Golfklúbbsins Óss
Eyþór Franzon Wechner, Birna Sigfúsdóttir og Grímur Rúnar Lárusson sigruðu í sínum flokkum á Meistaramóti Golfklúbbsins Óss sem haldið var dagana 1. og 2. júlí síðastliðinn. Eyþór sigraði í meistaraflokki karla, Birna í meistaraflokki kvenna og Grímur í 1. flokki karla.
Úrslit urðu þessi:
Meistaraflokkur karla:
1. sæti Eyþór Franzson Wechner
2. sæti Jón Jóhannsson3. sæti Valgeir M Valgeirsson
Meistaraflokkur kvenna:
1. sæti Birna Sigfúsdóttir
2. sæti Greta Björg Lárusdóttir
1. flokkur karla:
1. sæti Grímur Rúnar Lárusson2. sæti Kári Kárason
Meistaraflokkur kvenna: Greta Björg og Birna. Mynd: FB/GÓS
1. flokkur: Kári og Grímur. Mynd: FB/GÓS