Fíkniefnaleitarhundurinn Olly tekur til starfa

Enskur Springer Spaniel. Mynd af netinu.
Enskur Springer Spaniel. Mynd af netinu.
Á Facebooksíðu Lögreglan á Norðurlandi vestra segir frá því að síðastliðin miðvikudag afhenti Lögreglan á Norðurlandi vestra Tollgæslunni fíkniefnaleitarhundinn Olly. Olly kemur frá Englandi og er af tegundinni Enskur Springer Spaniel.
 
Undanfarna mánuði hefur Olly verði í strangri þjálfun á Sauðárkróki og lofar hann mjög góðu. Koma hans til Tollgæslunnar á Íslandi er því mikill fengur fyrir stofnunina en hann mun starfa að mestu á suðvesturhorni landsins.
 
Mikil vinna liggur að baki í þjálfun löggæsluhunda og er óhætt að segja að frá því að frá því að Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra tók við málaflokknum á landsvísu árið 2018 hefur ekki verið slegið slöku við. Síðan þá hafa verið afhentir 10 leitarhundar til lögreglu, Tollgæslu og Fangelsismálastofnunnar.
 
Um leið og Lögreglan fagnar nýjum félaga þá senda þau þakkir og hlýhug til þeirra sem færðu þeim þessar ómetanlegu gjafir og óska Tollgæslunni og Fangelsismálstofnun til hamingju með nýja liðsfélaga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir