Fjallakaffi opnaði um helgina

Laugardaginn 31. júlí kl. 13.00 opnaði Fjallakaffi Gallerý sem er kaffihús með handverksívafi og er staðsett að Steinnýjarstöðum í Skagabyggð, um tíu km norðan við Skagaströnd.

Í Fjallakaffi er hægt að setjast niður og gæða sér á gómsætum heimabökuðum kökum og brauði ásamt ilmandi kaffi og rjúkandi súkkulaði. Af veröndinni má njóta veitinga, útsýnis og sveitasælu við árniðinn frá Suðuránni sem rennur framhjá í fallegu gili. Ýmsar handunnar vörur verða til sölu á staðnum ásamt vörum frá Ísaumi.

Fjallakaffi Gallerý er opið alla daga vikunnar frá klukkan 13-18 og 20-22 og eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar í símum 4522945 og 6923929

    

Fleiri fréttir