Fjölnet og PREMIS sameinast – Sameinað félag með vel á annan milljarð í tekjur

Frá vinstri, Pétur Ingi Björnsson, Sigurður Pálsson, Kristinn Elvar Arnarsson
Frá vinstri, Pétur Ingi Björnsson, Sigurður Pálsson, Kristinn Elvar Arnarsson

Upplýsingatæknifélögin Fjölnet og PREMIS hafa sameinast. Sérsvið félagana er rekstur tölvukerfa (e. Managed Service Provider), alrekstursþjónusta og hýsing. Auk þess sinna félögin fjölbreyttri þjónustu á sviði upplýsingatækni. Áætluð velta sameiginlegs félags á árinu 2021 er á annan milljarð. Við viðskiptin verða Sigurður Pálsson og Pétur Ingi Björnsson eigendur Fjölnets starfandi hluthafar PREMIS. Félögin munu starfa undir nafni PREMIS með starfsstöðvar á Sauðárkróki og í Reykjavík.

„Það er mikil samlegð með rekstri þessara félaga og í krafti aukinnar stærðar munum við geta boðið enn betri þjónustu og aukið lausnaframboð á frábærum verðum. Við náum einnig að mæta aukinni kröfu um öryggisfjarlægðir með hýsingu gagna bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki. Fjölnet eykur okkar þekkingu og á sama tíma vonumst við til að geta boðið enn betri þjónustu á Norðurlandi með þessari sameiningu“, sagði Kristinn Elvar Arnarson forstjóri PREMIS.

„Við sjáum mikil tækifæri í þessari sameiningu og hlökkum til að kynna viðskiptavinum aukið lausnaval sem við getum nú boðið upp á. Einnig er mikilvægt fyrir okkur að með þessu styrkjum við hýsingarsal okkar á Sauðárkróki og er ánægjulegt að geta aukið uppbyggingu á sviði upplýsingatækni á Norðurlandi“, sagði Sigurður Pálsson framkvæmdastjóri Fjölnets.

Sameiginlegt félag er með ríflega 50 starfsmenn.

- Fréttatilkynning

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir