Fjórgangur í Mótaröð Neista
Á mánudaginn kemur verður næsta mót í Mótaröð Neista haldið í reiðhöllinni Arnargerði. Keppt verður í fjórgangi og hefst mótið kl. 20:00. Einn knapi er inni á vellinum í einu og stýrir hann sjálfur prógramminu. Mega knapar sýna gangtegundirnar í hvaða röð sem er.
Skráning er á nýtt netfang hjá Neista motanefndneista@gmail.com fyrir miðnætti sunnudagskvöldið 23 mars. Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, flokkur, hestur og IS númer. Skráningargjöld eru 1.500 kr. fyrir fullorðna þ.e.a.s. fyrir fyrsta hest en 1.000 krónur eftir það og 1.000 fyrir unglinga. Prógrammið er eftirfarandi:
Knapi má velja upp á hvora hönd hann ríður forkeppni og eftirfarandi eru gangtegundirnar sem knapi sýnir: Hægt tölt, brokk, fet, stökk og fegurðartölt. Úrslitum er svo stýrt af þul og eru sömu gangtegundir.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Neista.
