Fjórir slösuðust í árekstri

Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi. Mynd:FE
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi. Mynd:FE

Harður árekstur varð nálægt afleggjaranum að bæjunum Hólabaki og Uppsölum, rétt vestan Vatnsdalshóla, seinni partinn í gær. Fjórir voru fluttir á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi og að sögn lögreglunnar á Norðurlandi vestra voru tveir þeirra meira slasaðir en hinir.

Í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi segir að ekki sé vitað um meiðsl hinna slösuðu en að sögn lögreglu hafi fólkið allt verið með meðvitund og vel áttað. Allir hafi verið í bílbeltum. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvað olli slysinu en bílarnir hafi skollið saman og áreksturinn verið harður.

Fleiri fréttir