Forval VG í NV-kjördæmi

Kjördæmisþing Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi samþykkti einróma á fjölmennum fundi í gærkvöldi að halda forval til að velja á framboðslista fyrir komandi Alþingiskosningar 25. september næstkomandi. Steinunn Rósa Guðmundsdóttir á Sauðárkróki var endurkjörin formaður kjördæmisráðsins.

Í tilkynningu frá VG kemur fram að kosin hafi verið kjörstjórn til að sjá um framkvæmd og skipulag forvalsins, sem sé bindandi í efstu þrjú sætin, en í samræmi við reglur hreyfingarinnar um að ekki megi halla á konur. Vinstri græn í Norðvesturkjördæmi eru fimmta kjördæmisráð hreyfingarinnar sem velur forval, svo nú er ljóst að forval VG fer fram í öllum kjördæmum.

Stjórn kjördæmisráðs gerir tillögu um að fram fari forval um fimm efstu sæti á framboðslista VG í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar, sbr. 13. gr. laga Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Val í þrjú efstu sætin skal vera bindandi og í samræmi við forvalsreglur VG. Stjórn kjördæmisráðs lagði til fimm manna kjörstjórn til að annast framkvæmd forvals og undirbúning þess og leggja tillögu um framboðslista fyrir kjördæmisráð. Kjörstjórn skiptir með sér verkum.

Í kjörstjórn voru kosin:
Bjarki Þór Grönfeldt
Björg Baldursdóttir
Jóhanna Magnúsdóttir
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
Þóra Magnea Magnúsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir